Til baka í yfirlit

Skipulag og sjálfvirkni

Sjálfvirk verkfæri sem taka óvissuna úr því að pakka, merkja og afgreiða rétt magn af mat á réttan stað, á hverjum degi.

01

Sjálfvirk kassapökkun

Kerfið raðar máltíðum hvers fyrirtækis sjálfkrafa í kassa út frá stillanlegu hámarki á kassa og reynir að halda sama rétti saman í einum kassa - engin handavinna, engin ágiskun um hve margir kassar duga.

02

Merking kaldra rétta

Kaldir réttir fá sérstaka kassa og merkingu, aðskilda frá heitum réttum, svo hitastigið helst rétt alla leið til viðskiptavinar.

03

Gátlistar fyrir eldhús

Starfsfólk hakar við rétti fyrir hvert fyrirtæki, flokkað eftir leiðum, og sér hvaða leiðir og fyrirtæki eru klár - svo ekkert gleymist í amstri dagsins.

04

Límmiðaprentun

Prentaðu yfirlits-, leiða-, fyrirtækja- og kassamiða (4x6 Zebra límmiðar) með einum smelli.

05

Skipting niður á leiðir

Tengdu hvert fyrirtæki við afhendingarleið svo starfsfólk viti hvað fer hvert og flokkist sjálfkrafa í kerfinu.

06

Sjálfvirkar tilkynningar

Ef réttur er tekinn af matseðli eftir að pantað var fá allir sem pöntuðu réttinn sjálfvirkan tölvupóst um breytinguna - enginn þarf að hringja eða senda skilaboð.

Sjáðu hvernig Supermeals getur einfaldað eldhúsið þitt