Eitt kerfi frá pöntun til afhendingar

Supermeals sameinar matseðlagerð, pantanir, framleiðslu í eldhúsi og afhendingu í einu kerfi - með sjálfvirkni, sveigjanleika og öryggi sem hentar bæði veitingastöðum og viðskipavinum þeirra.

01

Skipulag og sjálfvirkni

Sjálfvirk kassapökkun, límmiðaprentun og gátlistar sem tryggja að réttur matur fari í réttan kassa - á réttan stað, á hverjum degi.

02

Kiosk sjálfsafgreiðsla

Starfsfólk auðkennir sig með QR kóða, starfsmannaspjaldi eða kennitölu og fær máltíð sína skráða samstundis - engin bið, engir pappírar.

03

Klippikort og símaveski

Fyrirframgreidd klippikort sem hægt er að bæta beint í Apple Wallet eða Google Wallet, með rauntíma uppfærslum í hvert sinn sem eitthvað breytist.

04

Öryggi, aðgangsstýring og tengingar

Hlutverkakerfi, atvikaskrá og rafræn skilríki - ásamt vefþjónustum og innfellanlegum matseðli fyrir utanaðkomandi kerfi.

05

Pöntunarreglur og áminningar

Stilltu pöntunarfrest og hver má panta hvað. Notendur fá áminningu í tölvupósti eða SMS áður en fresturinn rennur út.

06

Matseðla- og uppskriftabanki

Haltu utan um allar uppskriftir, flokkaðu þær eftir smekk og merktu ofnæmisvalda - hvort sem er á íslensku eða ensku.

07

Nýskráning viðskipavina

Fyrirtæki sækja um viðskipti í gegnum skráningarform og beiðnin berst beint til veitingastaðarins. Supermeals einfaldar umsóknarferlið fyrir alla aðila.

08

Pantanaskýrslur og útflutningur

Taktu pantanir út í Excel eða CSV fyrir hvaða tímabil sem er og fáðu heildaryfirlit á einum stað.

09

Tvítyngt kerfi

Matseðlar, réttir og viðmót eru til bæði á íslensku og ensku - hentar vinnustöðum með fjölbreyttan starfsmannahóp.

Klár í að einfalda utanumhaldið?

Segðu okkur aðeins frá rekstrinum þínum og við sýnum þér nákvæmlega hvernig Supermeals myndi virka fyrir ykkur.